Vitund er vald - Vitundar þjálfun, NETNÁM í áskrift
Viltu læra að hámarka krafta þína og styrk, viltu vera KRAFTAVERK?
Horfa á kynningarmyndband
Vitundarþjálfun – Vitund er vald, styrkur
Viltu styrkja veru þína og vitund?
Viltu öðlast frið, frelsi frá oki hugans?
Viltu endurheimta vald þitt og orku?
Viltu læra að hámarka athygli og skerpu?
Viltu læra að nýta þér öndun til að virkja afl þitt?
Viltu vera viljandi skapari í þínu lífi?
Viltu öðlast sjálfstraust – sjálfsöryggi?
Hvað er vitundarþjálfun?
Vegferð frá viðnámi og fjarveru í vitund og vald, sumir kalla þetta núvitund en ég vel að kalla þetta vitund, vera.
Vitundarþjálfun er valdþjálfun, valfærni á meðan að fjarvera, ótti og viðnám er valdleysi; óvalfærni, óheilyndi eða það sem köllum maya, blekking.
Þjálfunin gengur út á að vilja okkur, velja okkur við allar aðstæður og vera þannig til staðar, i núinu, mætt, máttug og valfær. Vissulega getum við gleymt okkur og orðið óvalfær um stundarsakir en þjálfunin gerir okkur kleift að sjá við okkur og velja viðbragð í stað þess að yfirgefa okkur, afneyta eða hafna.
Afhverju vitundarþjálfun?
Ef það er til synd þá er það að hafna sér eða afneita með sektarkend, skömm eða öðrum svívirðingum í eigin garð. Þegar maður heldur að maður sé hugsanir sínar eða hegðun þá lifir maður í sjálfsmeðvitund sem er alltaf á vegum skortdýrssins, egósins sem stendur vörð um sögu vanmáttar, skorts sem við lærðum og tileinkuðum okkur í bernsku og stöndum nú vörð um og jafnvel réttlætum.
Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar, þegar þú ert í vitund þá getur þú valið viljandi að veita því athygli sem þú vilt, annars ertu líklega að veita því athygli sem þú vilt ekki, eins og t.d. að vera með áhyggjur eða annan ótta sem dregur úr orku þinni og þannig valdi.
Það eru aðeins tveir möguleikar á hverju augnabliki; athygli eða viðnám, að vera eða vera ekki, að vilja sig eða vilja sig ekki , traust eða ótti, styrkur eða vanmáttur, vera eða fjarvera.
Að vakna til vitundar um vald sitt og styrk er upphafið, síðan tekur við þjálfun í valfærni, að vilja sig sem verður vörðuð vegferð velsældar.
Hver er ávinningurinn af vitundarþjálfun?
Vitund er vald – viðnám, fjarvera er valdleysi.
Viðnám þýðir að vera við nám og læra, viðnámið okkar er öflugasti kennarinn og þegar maður veitir viðnáminu ekki viðnám þá opinberast blekkingin og við getum séð við okkur og öðlast þannig hugarró og frið, sjálfsöryggi, styrk, meira úthald, betri hvíld og svefn, skerpu og víðsýni.
Viðhorfsbreyting er bylting og það sem við sjáum fyrir okkur er það sem við framköllum, sköpum. Með því að breyta því eina sem við höfum vald til að breyta þ.e. hvernig við upplifum og sjáum okkur þá breytist allt, allur heimurinn og öll okkar upplifun. Við flytjum úr raun-veruleikanum (leikur að raunum sínum) í veruleikann (Vera að leika sér). Í vitund öðlumst við aðgang að hugritum okkar og getum því breytt sögunni sem við erum sífellt að endurtaka. Hvort sem við þrætum fyrir mætti okkar eða vanmætti þá þurfum við að staðfesta það viðhorf til að hafa rétt fyrir okkur. Þessu getum við breytt þegar við erum tilbúinn að sjá við óheilindunum, blekkingunni og vera ábyrg, vera valfær.
Þannig erum við mætt og verðum máttug, við öðlumst hugarró og heilumst með því að vilja okkur umbúðalaust við allar aðstæður. Við hámörkum orku, styrk og krafta okkar, verðum KRAFTAVERK.
Hvernig fer þjálfunin fram?
Við notum daglegt líf til að þjálfa okkur ásamt skilgreindum verkfærum sem stuðla að vitund við sem flest tækifæri;
Hreyfing, líkamsrækt, göngur
Öndun í vitund og öndunartækni
Hugleiðsla, ýmsar tegundir af vitundaræfingum
Næringarvitund
Dagleg störf
Vaknaðu með Guðna
Heilrækt upptekið efni
GlóCast samtöl
Ýmis fróðleikur um vitundarþjálfun
Upptekið efni
Hvað felst í áskrift kr. 3.990
10% afsláttur að öllum vörum gma.is
Viðnám opinberar allt, alla blekkingu og vanmátt. Þegar við erum ekki lengur í viðnámi gagnvart viðnáminu þá getum við séð við okkur og leiðrétt hegðun og atferli sem breyta síðan allri upplifun.
Leiðbeinandi
Guðni er fæddur árið 1954 og uppalinn í Keflavík. Hann rekur Rope Yoga Setrið á Garðatorgi, Garðabæ og GlóMotion International og starfar samhliða því við lífsráðgjöf, námskeiða- og fyrirlestrahald, þjálfun GlóMotion kennara, almenna GlóMotion þjálfun og skriftir.
Starfsferill Guðna við heilrækt spannar fjörtíu ár og er hann fyrsti einkaþjálfari og lífsráðgjafii á Íslandi. Hann stofnaði Vaxtarræktina hf. árið 1982 en hún var í senn innflutningsverslun og líkamsræktarstöð sem hafði það að markmiði að hvetja til andlegrar, huglægrar og líkamlegrar heilræktar.
Árið 1986 stofnaði Guðni tímaritið Líkamsrækt og næring og fram til ársins 1988 var hann útgefandi og aðalritstjóri þess. Á árunum 1987–1989 veitti hann forstöðu deildar innan Máttar fyrir heildræna þjálfun hugar og líkama. Máttur var hugarfóstur hóps lækna og starfsfólks í heilbrigðiskerfinu þar sem lögð var áhersla á nýja og heildræna nálgun við heilsu og líkamsþjálfun. Samhliða þessum störfum aflaði Guðni sér víðtækrar þekkingar á samspili huga og líkama í gegnum jóga, næringarfræði, náttúruleg bætiefni og líkamsþjálfun.
Guðni fluttist til Los Angeles og bjó þar og starfaði í 16 ár eða frá 1990 - 2006. Sú hugmyndafræði sem hann hefur hannað og þróað er einkum afrakstur þess tíma því þar starfaði hann við heilræna þjálfun líkama og sálar ásamt lífsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa. Samhliða vann hann að þróun og hönnun Rope Yoga kerfisins og æfingastöðvarinnar, en kerfið tengir hugrækt, líkamsrækt, næringarfræði og orkuumsýslu í eitt heilrænt velsældarkerfi.
Árið 2006 flutti Guðni heim til Íslands, stofnaði Rope Yoga Setrið og hóf að þróa Rope Yoga kerfið yfir í GlóMotion. GlóMotion býr yfir fleiri tegundum æfinga og þar er lögð aukin áhersla á næringu, hvað við nærum og á hvaða forsendum. GlóMotion námskeið hafa verið kennd í Rope Yoga Setrinu við góðar undirtektir frá árinu 2007.
Námsskrá
-
ForskoðunVelkominn og ValdAndi (85:51)
-
Forskoðun1. Athygli er upphaf og valfærni varanleg vitund (91:03)
-
Forskoðun2. Tilgangur er einlægur - hjartlægur (375:24)
-
Forskoðun3. Vilji er verknaður í forvitni (246:51)
-
Forskoðun4. Þakklæti verður örlæti (253:43)
-
ForskoðunGögn og hugleiðslur
-
ForskoðunMorgun hefðir (6:09)
-
ForskoðunKvöld hefðir (0:48)
-
ForskoðunSamantekt og yfirferð (4:18)
Algengar spurningar
Sæll Guðni og takk fyrir gott og gagnlegt námskeið
Þegar ég fór heim eftir síðasta tímann fannst allt búið allt of fljótt
Hjartað mitt var rétt að byrja að skjóta rótum og átta sig á þessum sígilda sannleka enn og aftur
Það er gaman að hlusta á þig tala "í beinni" en líka mjög gott að fá hugleiðingar svona eftirá
Það hjálpar til við að rifja upp og halda áfram að skoð sig innan frá
Kveðja til þín og konu þinnar
Arnheiður Guðmundsdóttir
Elsku Guðni, ég settist niður til að skrifa umsögn um náskeiðið þitt (sem var alveg dásamlegt - ég var misvel upplögð milli tíma - lífið er áskorun) en endaði á að skrifa þakkarbréf. Ég er á mínu eigin tímabelti - alltaf nokkrum dögum eftirá í verkefnum sem eru fyrir utan þægindarammann - en ávalt stundvís í tíma og rúmi - og skrifa þakkarbréfið nokkrum dögum á eftir áætlun námskeiðsins. Þakka þér fyrir að leiða mig að mér... fyrir að vera þar sem þú ert... fyrir að verða á vegi mínum... fyrir að dæma ekki... fyrir að sýna mér og kenna á öll þessi nýju verkfæri... fyrir að kenna mér að elska mig eins og ég er núna... fyrir að minna mig á að draga andann... fyrir að minna mig á að tyggja... fyrir að kenna mér að hafa húmor fyrir vitleysunni í sjálfri mér... fyrir að svara símtölum, bæði nokkurra vikna gömlum og samdægurs (það er saga með þessu sem tengist fyrsta yoga tímanum mínum)... fyrir að kenna mér að vilji er verknaður... fyrir að spyrja okkur á námskeiðinu: „Hvernig lítur þín hamingja út?“... fyrir að kenna mér um athyglina og ábyrgðina. Vegna þess sem þú hefur gefið mér, er ég ekki lengur hrædd að elska og sýna öðrum mig.
Með þakklæti og ást.
Kær kveðja,
Kristín Guðbrandsdóttir
Sæll Guðni.
Bestu þakkir fyrir að hafa leiðbeint mér í átt að skemmtilegu ferðalagi sem er rétt að byrja...þú ert snillingur :)