Máttur hjartans - Sjáðu fyrir þér - 9. apríl, 2024

Viljandi sjónsköpun!

   Horfa á kynningarmyndband   Skrá mig á námskeið

Máttur hjartans netnám með Guðna 9. apríl, 2024

Sjáðu fyrir þér og skapaðu framtíð þína viljandi í vitund.


Nýttu þér mátt hjartans – til að framkalla það sem þú óskar í lífinu.
Hvað vilt þú?
Viltu stofna og styrkja varanleg sambönd?
Viltu laða að þér varanlega velsæld, heilsu og hamingju, auðlegð?
Viltu tendra ástríður og kraft hjarta þíns?
Viltu vera ofurvera – kraftaverk?
Viltu aukna orku og verða kjarnorkuver?
Viltu læra að hugrekki er orka og styrkur hjartans!

Það er mikilvægt að þú skiljir að hvernig þú sérð þig og upplifir – hvaða viðhorf þú hefur til þín – mótar sýn sem framkallar það sem þú sérð fyrir þér og einmitt þetta verður sá veruleiki sem þú skapar. Mig langar að þú skiljir hvaða lífsins auðlegð opnast þegar þú tekur ábyrgð á eigin tilvist, verður valfær og eykur eigin heimild til hamingju og þakklætis. Ég vil sjá þig auka heimildina og finna þar hugrekki og áræðni til að lifa til fulls, á þínum forsendum; að sjá þig skilja að enginn er eyland og að aðeins með því að þiggja og gefa af þér geturðu þrifist í lífinu og látið þig skína til fulls.

Þetta er það sem ég vil – en hvað langar þig? Langar þig að breytast? Þetta er gildruspurning sem ég legg alltaf fyrir í gamni á námskeiðunum mínum. Flestir rétta auðvitað upp hönd og staðfesta að jú, þeim „langar“ að breytast. Þá bendi ég góðfúslega á að í þessu viðhorfi felist höfnun á eigin tilvist og öllum manns gjörðum fram að þessu.

Við komum okkur þangað sem við erum – með miklum tilkostnaði. Við höfum varið allri ævinni í að verða svona, núna, eins og við erum. Hvers vegna erum við þá að hafna því? Við þessu eru mörg svör og þau opinberast á námskeiðinu en núna, einmitt núna þegar þú lest þessi orð vil ég biðja þig um að meðtaka eftirfarandi orð með hjartanu, með skilningi dýpst úr hjartanu:

Þú getur ekki farið fyrr en þú ert kominn. Vilji er verknaður, ekki löngun, þrá, ætlun eða von. Máttugur er mættur maður sem hefur fyrirgefið sér og vill sig umbúðalaust.

Öflugt námskeið sem fleytir þér í rými hjartans og þaðan í hæstu hæðir velsældar.

Boðið er upp á beina útsendingu á lokaðri zoom síðu þar sem Guðni fer yfir efnið og svarar spurningum frá þátttakendum einu sinni í viku kl. 19:30 á þriðjudögum. Þeir sem ekki eiga kost á að mæta, geta horft á upptökuna síðar eftir eigin hentugleika.



Leiðbeinandi


Gudni Gunnarsson
Gudni Gunnarsson

Guðni er fæddur árið 1954 og uppalinn í Keflavík. Hann rekur Rope Yoga Setrið á Garðatorgi, Garðabæ og GlóMotion International og starfar samhliða því við lífsráðgjöf, námskeiða- og fyrirlestrahald, þjálfun GlóMotion kennara, almenna GlóMotion þjálfun og skriftir.

Starfsferill Guðna við heilrækt spannar fjörtíu ár og er hann fyrsti einkaþjálfari og lífsráðgjafii á Íslandi. Hann stofnaði Vaxtarræktina hf. árið 1982 en hún var í senn innflutningsverslun og líkamsræktarstöð sem hafði það að markmiði að hvetja til andlegrar, huglægrar og líkamlegrar heilræktar.

Árið 1986 stofnaði Guðni tímaritið Líkamsrækt og næring og fram til ársins 1988 var hann útgefandi og aðalritstjóri þess. Á árunum 1987–1989 veitti hann forstöðu deildar innan Máttar fyrir heildræna þjálfun hugar og líkama. Máttur var hugarfóstur hóps lækna og starfsfólks í heilbrigðiskerfinu þar sem lögð var áhersla á nýja og heildræna nálgun við heilsu og líkamsþjálfun. Samhliða þessum störfum aflaði Guðni sér víðtækrar þekkingar á samspili huga og líkama í gegnum jóga, næringarfræði, náttúruleg bætiefni og líkamsþjálfun.

Guðni fluttist til Los Angeles og bjó þar og starfaði í 16 ár eða frá 1990 - 2006. Sú hugmyndafræði sem hann hefur hannað og þróað er einkum afrakstur þess tíma því þar starfaði hann við heilræna þjálfun líkama og sálar ásamt lífsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa. Samhliða vann hann að þróun og hönnun Rope Yoga kerfisins og æfingastöðvarinnar, en kerfið tengir hugrækt, líkamsrækt, næringarfræði og orkuumsýslu í eitt heilrænt velsældarkerfi.

Árið 2006 flutti Guðni heim til Íslands, stofnaði Rope Yoga Setrið og hóf að þróa Rope Yoga kerfið yfir í GlóMotion. GlóMotion býr yfir fleiri tegundum æfinga og þar er lögð aukin áhersla á næringu, hvað við nærum og á hvaða forsendum. GlóMotion námskeið hafa verið kennd í Rope Yoga Setrinu við góðar undirtektir frá árinu 2007.


Algengar spurningar


Hvenær hefst námskeiðið og hvenær er því lokið?
Námskeiðið hefst 9. apríl, 2024 og endar þegar þér hentar! Þetta er netnám með beinum útsendingum og þú ræður ferðinni - þú ræður hvenær þú ert tilbúinn að sjá fyrir þér, opna hjartað og skilgreina hvenær vegferð þín til velsældar hefst og hvenær þú líkur þessu ferðalagi.
Hversu lengi hef ég aðgang að námsgögnunum?
Hvernig hljómar, að eilífu? Þegar skráningu er lokið, hefur þú ótakmarkaðan aðgang að þessu námskeiði - og öllum námsgögnum sem tilheyra námskeiðinu ásamt fylgigögnum og facebooksíðu námskeiðssins.
Hvað ef mér líkar ekki námsefnið eða það hentar mér ekki?
Við viljum stuðla að velsæld þinni, ekki vansæld! Ef námskeiðið uppfyllir ekki væntingar þínar eða þarfir, hafðu þá samband við okkur innan 15 daga og við endurgreiðum þér námskeiðsgjaldið að fullu.
Hvaða gögn fylgja námskeiðinu?
Bókin Máttur hjartans í prentuðu eða pdf formi, myndbönd og aðrar leiðbeiningar. Opið spjall, útsending einu sinni í viku á lokuðum facebook vettvangi. Daglegir póstar til áminningar og hljóðupptökur frá Mætti hjartans ásamt uppástungum um myndefni til stuðnings.
Fyrir hverja er námskeiðið ætlað?
Fyrir alla sem vilja varanlega velæld. Fyrir alla sem eru tilbúnir að vera viljandi skaparar í vitund og SJÁ fyrir sér á markvissan og skilgreindan máta. Fyrir alla sem vilja láta af fórnarlambs eða píslarvættis hegðun. Við erum annaðhvort að skapa líf okkar viljandi í vitund eða óviljandi og það er bara þetta Ó sem aðskilur velsæld eða vansæld. Máttur hjartans er tækifæri til að vera leiðandi afl í lífinu en ekki farþegi í mótþróa. Máttur hjartans kennir þér að sjá fyrir þér...
Hvernig eru námskeiðin uppbyggð?
Máttur hjartans bókin er umgjörð fyrir verkferlin og byggja þau aðalega á fjórum skrefunum þó öll skrefin sé notuð sem umgjörð; 1. Athygli, að vakna til vitundar og losna undan oki hugans. 2. Valfærni, að fyrirgefa sér umbúðalaust og vilja þannig valdið sem okkur er gefið og endurheimta um leið orkuna sem við vorum að verja í eftirsjá og iðrun og nýta hana til góðs. 3. Tilgangur, skilgreina hvaða hlutverki maður ætlar að gegna og hvaða þjónustu við veitum, hvað við sjáum fyrir okkur. 4. Heitbinding, að lofa sér til fulls í eigið líf og skilja að heilindi er forsenda velsældar og þannig rými og verðugleiki. 5. Framganga, að opinbera sjálfsmynd sína í gjörðum vitandi að vilji er verknaður ekki von eða væl. Þú lærir að opinbera hugmyndir sem verða að veruleika. 6. Innsæi, að vera einlægt vitni í sinni tilvist ekki böðull í persónulegu einelti í eigin garð. 7. Þakklæti, að velja að telja blessanir sínar en ekki böl. Þakklæti er uppljómun, kærleikur og velsæld, öflugasta athöfn sem maður getur iðkað og er alltaf val. Þakklæti er tengingin við almættið. Ég nota myndbönd, hljóðupptökur, PDF skjöl og svo rafrænt umhverfi sem við vinnum í og fylgjumst með framgangi nemenda. Þetta er öflugur skóli á netinu sem við köllum GlóMotion Akademíuna. Nemendur eru í virku sambandi ef þeir vilja eða geta unnið einir og sér. Einnig er samkoma í lokuðum facebook hópi einu sinni í viku þar sem nemendur geta spurt og fengið svör. Námskeiðið hefst 23. mars og frá þeim degi fær þátttakandinn/n senda pósta daglega til áminningar og örvunar.
Er námskeiðin fyrir þá sem vilja skerpa á lífi sínu eða fyrir þá sem hafa orðið fyrir áföllum?
Fyrir alla sem vilja lifa í velsæld og eru tilbúnir að stíga inn í líf sitt á öðrum forsendum og breyta um viðhorf gagnvart sjálfum sér. Það skiptir engu máli hvar þú hefur verið bara hvert þú ert að fara og hvort þú ert tilbúinn í að vilja þig og elska. Upphafið er NÚNA. Þú ein/n hefur vald til að opna hjarta þitt og þiggja gjafir tilverunnar og hanna ferli velsældar en það verður ekki gert með sömu hegðun, hugsunum og framkomu sem komu þér á þann stað sem þú ert á í dag. Það er gott að hafa það í huga að allt sem þú veitir athygli vex og dafnar og ef þú ert að hugsa um það sem þú vilt ekki, þá ert þú að vilja það.
Hvers vegna ákvaðstu að hanna þetta námskeið?
Netið er dásamlegur vettvangur. Ég vil gefa sem flestum kost á að vinna að sinni velsæld - þetta er svo einfalt í sjálfu sér. Að stíga út úr máttleysi og vanmætti, hætta að draga sig niður og velja að stíga inn í vald sitt og stórkostleika, vera ljómandi og bjartar verur. Það eiga ekki allir heimangengt hingað til okkar í Garðabæ á Mátt hjartans. Fólk býr bæði um allt land og auðvitað erlendis. Námskeiðið tekur 4. uppbyggilegar vikur og við erum einfaldlega að svara eftirspurn sem kemur víða frá því við viljum þannig þjóna sem flestum. Það eiga allir að geta unnið að sinni velsæld hvar sem þeir eru staddir.“
Telur þú að það nýtist fólki betur að læra heima hjá sér en mæta á staðinn?
Það er misjafnt, sumir þurfa og vilja umgjörðina sem skapast við að mæta í sal til okkar og fá þannig stuðning til að breyta ferlum sínum. Það er líka oft gott að vera innan um fólk sem er á sömu bylgjulengd og í samhljóm. Aðrir kjósa að vinna á skjá og líður jafnvel betur við þannig aðstæður. Þá er einnig tími og kostnaður við ferðalög og þann tíma má nýta til að læra heima. Þetta er eins misjafnt og við erum mörg en eins og við vitum er kennsla og námskeiðahald að verða stöðugt vinsælla á netinu - að læra á sínum tíma og hraða.

Byrja núna!